miðvikudagur, 28. febrúar 2007

Hvað þarf ég að bíða lengi eftir þessari reiknivél?

Skriffinnskan hér í Argentínu er hreint ótrúleg.
Við ákváðum að fara í sundferð síðustu helgi en ferðin endaði hinsvegar á heilsugæslustöð. Nei, mamma, Krummi og Keli voru hvorki með áfengis- né reykeitrun.
Þegar þú kaupir þig inn í laugina færðu miða sem þú tekur með þér. Síðan ertu sturtaður með því að gamlir karlar skvetta kaldri vatnsfötu á þig.

Eftir þá píningu er farið í sérstakt herbergi þar sem læknir situr í svörtum hægindastól og biður þig um að lyfta upp höndunum og halda þeim þannig. Þegar þú ert búinn að standa í svona hálfa mínútu ákveður doktorinn að standa upp og grandskoða hvert einasta hár í handakrikanum.
Eftir þessa niðurlægingu tekur ekki betra við. Næst vill hann að þú lyftir upp sundskýlunni svo hún að skýli aðeins því allra heilagasta. Hver millimetri er grandskoðaður með stækunargleri.

Eftir þessa misnotkun ertu beðinn um að setja einn fót í einu á þykkan stálklump. Ekki nóg með það að fæturnir séu skoðaðir frá tá til hæls. Þá þarf líka að glenna tærnar framan í lækninn.
Eftir að læknirinn komast að því að við vorum sveppa-og ógeðslausir skrifaði hann á bláan miða. Merkti hann með nöfnum okkar og dagsetningu.

Eftir það benti hann okkur hvert ætti að fara.Það var allt gott og blessað nema hvað að dr. Dauði lét okkur ganga heilan hring um girðingu sem umlukti sundlaugina. Þegar við koum svo loks að innganginum voru miðarnir tveir teknir og stimplaðir.
Sundlaugin var hin fínasta.

Var læknirinn sonur Aribert Heim?

Önnur skrffinsku saga var þegar ég og Baaber fórum að kaupa vefmyndavélar.
Þá fórum við í röð til að velja myndavelina. Í afgreiðslunni var nafn tekið niður og helst vegabréfsnúmer en við vorum ekki með það á hreinu svo hann sleppti okkur með það og lét okkur hafa miða
Því næst var farið í röð þar sem við þurftum að sýna miðann og borga.

Síðan tók löng bið þar til nöfn okkar voru kölluð upp.
Þá loksins fengum við myndavélina.
Þær eru ágætar.

Þetta minnir bara á lélega brandara af heimsíðu Hannesar H.G. um Ráðstjórnarríkin en þeir eru víst týndir vegna þess að síðan var lögð niður.

Talandi um síður þá hefur þessi síða nú verið stillt þannig að allir geta kommentað.
Nú geta allir lesendur síðunnar farið í biðraðir til að kommenta á síðuna

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

"Tachando el calendario"

Nafnlaus sagði...

Verð að hrósa Silfurlendingum fyrir röggsamt og gott fótsveppaeftirlit

mm sagði...

Hrikalegt ástand