föstudagur, 23. febrúar 2007

Næsta stríð verður háð með steinum, Friðrik Steinum

Sambýlingar mínir hafa ákveðið að hætta að reykja. Andrúmsloftið er læviblandið. Íbúðinni er skipt í þrennt. Einu samskiptin eiga sér stað þegar móðganagusa frussast út úr einhverju herberginu. Ákvörðunin hjá strákunum var tekin af mjög skiljanlegum ástæðum. Það er bannað að reykja á kaffihúsum, ölstofum og skemmtistofum hér í Buenos Aires en bara í borginni ekki provincinu. Svo auðvitað verður bannið komið á Fróni er við lendum þar eftir mörg mörg ár.
Frá mínum sjónarhóli er þetta reykingarbann alveg frábært. Ég get notað fötin mín aftur eftir að hafa verið á skemmtistað og hausverkurinn eftir kvöldið er oftast enginn. Sú goðsögn um að svitalykt muni liggja yfir staðnum er alveg úr lausu lofti gripnar. Hún kemur í það minnsta ekki hér. Ég trú ekki að það sé vegna þess að Marianó og María séu eitthvað þrifnari en Jón og Gunna.
Svo verður eitthvað miklu meira.
Heimilisástandið hér á Paraguay er ekki fallegt. Vonandi verður allt fallið í ljúft leður þegar helgin er yfir staðin.
Þangað til mun ég vera stríðsfréttaritari ykkar.
Kannski verður hægt að sjá No Smoking Orchestra á reyklausum stað.

Uppfært: Þeir eru byrjaðir aftur.
Uppfært 2: Þeir eru byrjaðir að reykja krakk.

1 ummæli:

Unknown sagði...

gangi ykkur vel að hætta strákar! baráttukveðjur frá Glasgow!