fimmtudagur, 22. febrúar 2007

Enginn smá venjulegur dagur


Margir hafa verið að velta því fyrir sér hvernig venjulegur dagur hér í Buenos Aires er.
Fyrst af öllu þurfum við að vakna og gerum við það svona um tíu. Meðan einn af okkur skolar af sér kvöldsvitann sitja hinir á svölunum og borða ávextina sem við keyptum af ávaxtasalanum okkar, honum Carlos.
Carlos þessi er áhugaverð persóna. Hann hefur t.d. sagt okkur að hann rak hóruhús í ein tíu ár. Það kallaðist Boca Sensual eða Munaðarfulli munnurinn. Þó við höfum reynt að dæla atvinnusögur frá honum þá vill hann ekki segja meira. Segir að það sé ekki til siðs hér að tala um viðskiptavini svona fyrirtækja.
Carlos

Eftir að hafa skolað sig og belgt sig út af framandi ávötum eins og rauðum bönunum er kveikt á tölvunum.
Þar er horft á einn til tvo tíma. Fer eftir stemmningu.
Eftir að hafa grillast við tölvuskjáinn. Hendum við nokkrum bókum í bakpoka og höldum út í ofurmarkaðinn okkar, Disco. Kaupum þar einhverjar vörur fyrir daginn. Þjótum út í garðinn fyrir framan Colón og lesum liggjandi í sólinni. Áður en við förum aftur heim komum við aftur við í Disco og kaupum þar salad og lomo-sneiðar. Í götunni er líka sælkeraverlsun sem selur dýrindis vín og osta. Það er góður viðkomustaður.
Heima eldum við herramansmat.
Eftir mat horfum við svo á einhverja listræna mynd á rásinni Film&Arts
Eftir myndina er einkatími og má þá gera það sem maður vill.

Engin ummæli: