Á Paragvægötu 1283 er glatt á hjalla. Hér eru samankomnir í augnablikinu tveir Íslendingar og tveir Silfurlendingar. Von er á einum Íslendingi í viðbót og einum Portúgala en þeir skruppu í ljósmyndaverslun.
Hvarvetna þar sem við hittum Argentínumenn fáum við náttúrulega hlýjar móttökur. "Somos de Islandia" segjum við leigubílstjóranum eða eiganda þvotthússins. "Que lindo" segja þeir þá allir. "Que lindo."
Portúgalinn Nuno er nýjasti liðsmaðurinn. Hann ætlar að gista hjá okkur næstu tvær vikur. Hann ætlar að tala við fólk af portúgölskum uppruna hér í borg. Nuno langar að sjá hvernig portúgalski minnihlutinn hér í Buenos Aires hefur það. Hvort hann tali portúgölsku og þar fram eftir götunum.
Buenos Aires er borg margra þjóða. Í hverfinu Once ganga til dæmis gyðingar um götur. Litlir strákar með rabbínakrullur og sýnagógur á hverju strái. Það er gaman að berast með straumi þjóðahafsins. Sumir bera þýsk eftirnöfn á borð við Schüler. Aðrir ítölsk. Sumir rússnesk eða frá Eystrasaltinu. En þrátt fyrir þessi ólíku púsluspil Argentínu eru menn gríðarlega sameinaðir í ást sinni á Silfurlandinu. Þeir eru stoltir og bjartsýnir. Hér blaktir við hvert torg argentínski fáninn, hvíti og ljósblái með Maísólina í miðju. Og allstaðar myndir af hetjum úr þjóðaríþróttunum tveimur: Tangó og fótbolta. Þar standa tveir menn upp úr og eru í guðatölu. Tangósöngvarinn Carlos Gardel og svo auðvitað Diego Armando Maradona.
Verst með kerlinguna á hæðinni fyrir neðan sem alltaf þarf að kvarta og kveina þegar við hlægjum úti svölum.












5 ummæli:
Mér finnst bara eins og ég sé á staðnum.
Mig langar til argó!
Frikki geturðu lánað mér...200þúskall?
sammála fyrri umsögnum.
Flottur, Jói.
Carlos Gardel er klárlega bestur. Farið nú vel með ykkur argentínupiltar. Bið að heilsa Alejandro.
K.kv.
Skrifa ummæli