fimmtudagur, 1. mars 2007

Rigning og rok - Malos Aires

Við skulum vona að plönturnar okkar á svölunum lifi þessi ósköp af. Það gengur á með þvílíkum þrumum og eldingum. Það er fallegt og kærkomið að sjá dropana sem eru á stærð við hnullunga. Það er búið að vera svo fjandi heitt hjá okkur. Þessa stundina er líka nóg að gera í skólanum og því gott að langa ekkert út.

Nú sitjum við hver í sínu horni með heyrnartól á eyrum og látum hvorn annan í friði. Það kemur reyndar fyrir að Kermit og Villti Tryllti Rikki sláist heiftarlega og berji hvorn annan. Þeir kalla það "leikinn" þegar þeir slást. "Viltu koma í leikinn?" segja þeir trylltir.

Nuno fór einn til Iguasú. Við hefðum farið með honum ef miðannarverkefnin hefðu ekki verið á döfinni. Það var ágætt að fá frið fyrir Nuno því hann er svo mikill partímaður og stuðbolti. En honum verður auðvitað vel tekið þegar hann snýr aftur. Við strákarnir ásamt Áu vinkonu okkar ætlum að koma honum saman við Havaí-rós eina sem hún þekkir.

Við hittum ræðismanninn okkar hann Daniel í vikunni. Hann er með skrifstofu í Belgrano með Íslandskort á veggjum. Hann vinnur fyrir Marel og fleiri íslensk fyrirtæki. Það var gott að hitta karlinn enda vildi hann sinna okkur á allan hátt með okkar beiðnir. Daniel ólst upp á heimili þar sem Ísland var í daglegu tali en pabbi hans, Walter, hefur verið aðalræðismaður Íslands í Argentínu í hálfa öld. Það er fínt að vita af svona góðum körlum hér í borg. Hver veit nema að við förum á fyllerí með þeim. Sitjum þá með þeim feðgum og drekkum Fernet Branca - með pípuhatta, í nærbolum og reykjum gríðarstóra Havanavindla. Ég vona það allavega.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælir, æðislega er gaman að lesa þetta. Heima á íslandi er rosa stuð líka, þó að þriðja foreldrinu sé sárt saknað gengur lífið sinn vanagang og íslendingar safnast saman í bænum hverja helgi.
Það er rosa djamm hjá mér í kvöld og svo 2 sumarbústaðaferðir næstu og þarnæstu helgi planaðar.

4 sagði...

Þú verður nú að passa þig, Kjartan.