Í götunni okkar standa 10-15 hæða hús saman í endalausri lengju. Þetta er steinsteypuveröld og ekki stingandi strá að sjá nema í blómapottum á svölum. Þegar þú ferð út á svalir heyriru í bílum. Leigubílarnir silast eftir götunni okkar allan daginn. Við vorum svo sniðugir að fylla svalirnar af blómum. Það er nauðsynlegt í svona borg. Og nú hefur eitthvert skorkvikindi gert einn blómapottinn að heimili sínu. Kvikindið gefur frá sér hátt suð sem ágætt er að heyra þegar vélarhljóðin umkringja allt.
Sunnudagar hér í borg eru einstaklega rólegir. Nær allar búðir í götunni eru harðlæstar og lokaðar og fáir eru á ferli. Og sem enginn sérstakur unnandi sunnudaga fer það ekki sérstaklega vel í mig. Enda er ég orðinn svo vanur fjölmenninu og stærðinni. En auðvitað er ágætt að fá smá frið. Venjulegir dagar á götunum hér eru svo lifandi og ólgandi.
Ég hef haldið mig innandyra í dag. Það er komið að skuldadögum í náminu. Ég hef verið að skrifa verkefni og svo er próf í vikunni. Það að hafa eitthvað fyrir stafni er gott hérna. Því annars lendir maður ósjálfrátt í hlutverki túristans. Og tilhugsunin um túristann sem fer í 7 mánaða sólarlandaferð er ekki kræsileg. Mig langar til þess að lifa og starfa hér í borg - og tilheyra í stað þess að vera alltaf gestur.
Áðan horfðum við strákarnir á fyrri hálfleik í leik Los Cuervos (Hrafnanna) og Los Xeneizes (Genóumanna) eða San Lorenzo og Boca Juniors. Þegar ég kynni mig segi ég alltaf að nafnið mitt þýði Santo Cuervo - eða jafnvel Sancuervo. Þá er ég alltaf spurður hvort ég haldi ekki með San Lorenzo. En nei við höldum víst með Boca Juniors við strákarnir. Við þurfum að fara drífa okkur á heimavöll þeirra, La Bombonera, og sjá þá spila. Bocamenn spiluðu í árdaga félagsins í rauðum búningum. Rétt fyrir leik kom í ljós að félagið sem þeir voru að fara leika gegn klæddust samskonar búningum. Í sömu andrá sigldi sænskt skip inn í höfnina og skiptu þá Bocamenn yfir í sænsku fánalitina til þess að geta spilað leikinn. Það verður ein leið til þess að blanda sér í fjöldann hérna að fylgjast með fótboltanum. Og sunnudagar góðir dagar til þess. Hér fylgjast allir með boltanum. Ekki einungis sveittir karlar, heldur fjölskyldur og fólk á öllum aldri.
Maður fær stundum á tilfinninguna að það sé miklu meiri eining á meðal aldurshópa hér. Fólk á öllum aldri gengur um götur löngu eftir miðnætti og jafnvel lítil börn líka. Við strákarnir erum miklir áhugamenn um gamla refi. Við sáum einn áttræðan halda fótbolta á lofti með þvílíkri snilld og svo sáum við í borðtennissalnum algjöra kempu á svipuðum aldri sem hefði leikið sér að Guðmundi Stephensen. Við vonum bara að við verðum svona flottir gamlir refir sjálfir.
sunnudagur, 4. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)












Engin ummæli:
Skrifa ummæli