Í það minnsta hafa einhverjir aðilar út í bæ kvartað yfir of mikilli vinstri slagsíðu í skrifum okkar Helga.
Ég get þó fullvissað ykkur lesendur góðir að hér eftir munum við reyna að skrifa sem frjálslyndir fasistar.
Nú get ég komið með eitt mjög góðan gárunga brandara.
Hvað með blogg með ZERO bulli?
Ég er greinilega að fylgjast of vel með öryrkja umræðunni heima. Varla annað hægt eftir að moggabloggið byrjaði. Það er ekki annað hægt en að ýta á einhvern blogg hlekk af frétt um páfagauka í miðbænum.
Hvað með blogg frá Buenos Aires með ZERO væli um Ísland?
Ég man ekki hvað ég skrifaði um síðast og ég nenni ekki að athuga það. Svo ég ætla bara að skrifa það sem ég vils krifa.
Afsakið endurtekninguna.
Nunó, Portúgalinn, okkar fór. Ég verð nú að játa það að ég varð mjög ánægður með það að fá herbergið mitt aftur alveg óskipt. Samskipti milli mín og Núnó voru ágæt. Ég lærði á mjög erfiðan hátt að það er viss óvirðing að snerta hár einhvers í Portúgal. Ég var heldur ekki sérstaklega ánægður þegar ég þurfti að henda öllum auglýsingamiðunum sem hann hafði verið að safna.
En þar sem við getum ómögulega umgengist hvorn annan svona dagsdaglega þá þurftum við að á einhverjum félagslegum umbótum að halda og sjá Hótel Paraguay var skömmu síðar alveg fullbókað.
Stúlkurnar á suduramerika fengu að gista eina nótt hjá okkur svo þær gætu verið tvo daga lengur hér í Buenos. Það var auðvitað alveg sjálfsagt.
Þær Halla, Inga María og Sigga hafa verið á ferðalagi um heimsálfuna síðan í desember. Ferð þeirra er í raun allt öðruvísi en okkar. Á meðan við þrír fáum að grandskoða eina borg þá þurfa þær að lifa sem ferðamenn í hálft ár. Auðvitað sjá þær miklu meira en við en á móti kemur að yfirferðin þeirra er það hröð að eflaust er ekki hægt að sjá allt það sem maður myndi kæra sig um að sjá.
Við strákarnir hyggjum þó á víking í sumar.
Minn helsti draumur væri sá að fara til Venezúela og fara þar á úrslitaleikinn í Suður-Ameríkukeppninni. Ég myndi telja það vera diez puntos.
Enn fremur þurfum við að ferðast til að fá landvistarheimild okkar endurnýjaða. Við leikum þennan ljóta leik eins og svo margir aðrir hér í borg.
Reyndar höfum við ekki enn farið á leik hér í BA en við erum ekkert að stressa okkur á því. Vitum vel að það á eftir að gerast.
Heimsókn stúlknanna varð þó til þess að ég og Helgi fengum vott af heimþrá. Það var óútskýranlegt sem gerðist.
Heimþráin náði síðan hámarki sínu á Aston bar. Það er svaka notalegur bar sem heitir af einhverjum ótrúlegum orsökum eftir knattspyrnuliðinu Aston Villa.
Þegar við sögðum vertanum hvaðan við værum varð hann svaka ánægður og skellti disknum Gling-Gló undir geislann við mikinn fögnuð okkar Helga.
Axel hafði verið eftir heima vegna þess að hann vildi lesa sér til um hægðir. Hann sýndi okkur meðal annars þetta:
Nú er Axel allra manna fróðastur um hægðir manna og sumra dýra, sérhæfðir sig í öpum.
Enda er hann ekki kallaður neitt annað en dr. Saur hér heima.
Þeir sem vilja lesa meira um hægðir geta snúið sér hingað.
Ég og Helgi erum ekki lengur með heimþrá.
Kossar og knús.
Brækur og bús.
Svo ætla ég að hvetja allt blóðið sem les þetta að kommenta.
Vötnin eru frábær en þið vitið hvað er sagt.












8 ummæli:
Hvað er að sela eiginlega, saurnautn? Hvar endar þessi della?
Haha.. Thetta var gott blogg. Skemmtilega itarlegt haegdakort, steinsmugan faer m.a.s. ad fljota med.
Bestu Kvedjur
okei, segðu axel að nota sweet ass oftar, hann veit hvað ég meina... það á sérstaklega vel við núna...
oh lord, lui ha perduto suo cervello!
Kukur er ekki ahugamal!
gott að kúka
Ég bið að heilsa Siggu sudurameriku-stelpu og ykkur öllum innilega í leiðinni.
Góðar hægðir.
Sæll kæri frændi, frétti af blíðviðru í dag í mat hjá mömmu.Rakel frænka þín sagði að þú væri sofandi úti í löndum.
Hafðu það sem allra best.
Njóttu lífsins !!!!
Kristín
Hola primo Fridrico
Espero que todo esto saliendo bien en este lejano país.
Todos aquí te echamos de menos.
Tienes que desfrutar todo ahí a lo máximo,
“lo que distingue a los hombres no es su manera de ganarse la vida, sino más bien su manera de perder el tiempo”..
¡Saludos!
Tu primo Einar
Skrifa ummæli