föstudagur, 2. mars 2007

Þetta er mín framtíð!

Á frekar lélegum Shusi-stað, notaði of mikið af rjómaosti, voru þrír drengir að tala um hvernig menn þeir vildu koma heim til Íslands og hvað vildu gera þegar heim væri komið.

Belgi vildi geta lifað sem venjulegur þjóðfélagsþegn. Pantað ísskápaviðgerðarmann án fyrirhafnar. Helst viðgerðarmann sem kennir líka íþróttir í sekondaríó. Þegar heim væri komið vildi hann einungis loka sig inn í herbergi, sífullur og keðjureykjandi. Í þessu herbergi ætlaði hann að stunda það að spila tölvuleikinn Football Manager á milli þess þegar ynni eitthvað starf sem fælist í því að vera á netinu. Óljóst er hvenær hann vildi losna þaðan.
Er þetta herbergið hans Belga?

Briðrik var frekar óræðinn þegar kom að þvi að svara svona spurningum en svaraði því hann vildi verða eins og pabbi sinn þegar hann kæmi heim. Þybbinn og með yfirvaraskegg. Hann sættir sig líka við að vera mellufær í spænsku þegar hann kemur heim. Það sem hann vildi síðan gera var enn óræðnara . Eitthvað var talað um ódýrt vinnuafl hér í Argentínu.Verður Briðrik svona þegar hann kemur heim?

Baaber hefur þær væntingar til ferðarinnar að hann vill verða algerlega altalandi á spænsku. Ennfremur vill hann fara á alla Burger King, McDonalds og Hard Rock staði í Buneos Aires.
Þegar Baaber kemur heim mun hann líklega enda sem túlkur fyrir Belga og Biðrik. Ef ekki þá fer hann kannksi og lærir sálfræði.

Er Jose fyrirmynd Baabers í túlkamálunum?

Það verður ákaflega áhugavert að sjá hvað þessir ungu menn gera ekki við líf sitt.

3 ummæli:

Biggi sagði...

Þú þarft bara helvíts andskotans höggbor, Helgi!

Una sagði...

Ég er ekki viss um að það sé mögulegt að nota of mikið af rjómaosti.

mm sagði...

Núna er ég svo hræddur um ykkur