mánudagur, 2. apríl 2007

Brotnir stólar



Við höfðum herbergjaskipti við drengir. Ég hafði sofið í húsbóndaherberginu. Lá þar flatur í hjónarúmi um tveggja mánaða skeið. En nú bý ég í öðru herbergi sem hefur þann kost að geyma skrifborð sem er bylting fyrir mig. Og þegar þetta er skrifað sit ég við það. Stóllinn sem ég sit í er slæmur einsog allir stólar þessarar íbúðar. Það þarf lítið átak til þess að þeir falli saman þegar sest er á þá því það er greinilegt að þeir hafa allir brotnað einhvern tímann í fyrndinni og þeir hafi síðan verið límdir saman. Húshjálpin okkar hún Móníka sem kemur einu sinni í viku hefur haft það á orði hvað við séum duglegir drengir og ólíkir kólumbísku strákunum sem voru í íbúðinni fyrir ári síðan. Þeir voru víst miklir partídrengir og ástandið svo slæmt að aumingja Móníka þurfti að ryðja burt bjórdósunum til þess að komast inn. Því er því ekkert skrýtið að þessir kólumbísku drengir liggi undir grun fyrir að hafa brotið alla stólana og notað seinna það óyndisúrræði að líma þá lauslega saman og hafa sig á brott í snatri. Þegar þetta er skrifað lifi ég í miklum ótta við að stóllinn samanlímdi hrynji í gólfið og taki mig með. Ég vona að þegar það gerist haldi ég ekki á kaffibolla eða núðlusúpudisk því það gæti haft í för með sér lífshættulegar afleiðingar.

Ég er þónokkuð slappur og svamla um í íbúfeni (no pun). Veikindi hér um slóðir hafa stundum heimþrá sem aukaverkun. Ég var því glaður í dag þegar ég komst að því að á rúv.is hafa verið sett hlaðvörp (podcast). Ég er þessa stundina að hlusta á fyrstu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem Páll Ísólfsson var kynnir. Það er gaman að sitja í Argentínu og hlusta á hósta úr sal sem hljóðritaðir voru árið 1950 í Austurbæjarbíói. Allavega þegar maður þjáist tímabundið af heimþrá.

Rúv.is kætti mig líka fyrir helgi þegar heimasíðan leyfði mér að horfa á úrslit Gettu betur þar sem strákarnir sem ég hef þjálfað um þónokkurt skeið báru loksins sigur úr býtum. Það var einstaklega ánægjulegt að ljúka þjálfaraferlinum með því að sjá þá vinna. Ég er mjög stoltur af þeim drengjum.

Annars bið ég kærlega að heilsa öllum. Endilega kommentið.

7 ummæli:

Una sagði...

Til hamingju með sigurinn hjá strákunum, það var ótrúlega skemmtilegt að sjá þá vinna.
Annars kannast ég við þetta með Rúv og heimþrána. Ég hlustaði iðulega á Rás 1 á netinu þegar ég var ein seint á kvöldin úti í BNA og þótti þá sérstaklega notalegt náttúrulega þegar hann Atli var þulur.

Erla Elíasdóttir sagði...

húsið sem ég bjó í í Frederiksberg var líka þrifið af Moniku! og ég fékk stundum heimþrá og horfði á gettu betur, en datt talsvert oftar af hjólum en stólum...

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með krakkana þína.

Ariana sagði...

Til hamm og lattu ter batna, haldid svo afram ad blogga duglega strakar minir, tad er svo gaman ad heyra af ykkur

Nafnlaus sagði...

heyrðu, þú getur gleymt þessari heimþrá. ég kíkti yfir hafið í páskafrí og þetta er ekkert merkilegt hérna. Gróflega ofmetið bara. Og ekki gleyma tvíhöfða á ruv.is.

Nafnlaus sagði...

ég var einmitt ad horfa á spaugstofuna á netinu um daginn.. og einn fréttatíma :) alveg magnad!

Nafnlaus sagði...

ætlarðu ekki að taka á móti magna í smáralind?