miðvikudagur, 25. apríl 2007

Tvær vikur

Tölvan mín fór aftur í viðgerð og ákvað að dvelja þar í tvær vikur. Alveg dæmigert að þetta gerist þegar maður er langt frá heimaHp-unum.

Eflaust viðeigandi að skrifa fyrir ykkur Skerjaverja svona þegar maður er að hlusta á nýja Bjarkar diskinn í fyrsta skipti.

Margt hefur gengið á síðan ég skrifaði síðast. Veit ekki hvort ég ætti að setja þetta eina í eina stóra færslu eða vera sparsamur og skrifa nokkrar minni. Sjáum til.

Við förum í það minnsta til höfuðborgar Úrúgvæ, Montevideo, gistum þar á hosteli og hittum hina ýmsu persónuleika og auðvitað náðum við að skemmta okkur aðeins í leiðinni.

Ferðin tekur aðeins nokkra tíma þ.e. ódýrasta leiðin. Siglt er beint yfir ánna og lagt að landi í Colonia. Síðan bíður rúta eftir ferðalöngum og hendir heim til Montevideo það tekur tvo tíma.
http://www.dutchsubmarines.com/pictures/images/kxviii/boat_kxviii_arrival_montevideo_1934_1935_small.jpg
Við strákarnir að við hefðum aldrei komið til lands sem við vissum jafn lítið um. Það litla sem við vissum um fræga Úrúgvæa tengdust allir knattspyrnu. Seinna átti að koma í ljós að það var frekar skiljanlegt.

Við förum beint á hostelið þar sem við áttum pöntuð rúm. Það var nú frekar tíðindalaust kvöld. Fórum að skoða okkur um og snapa nokkra drykki í leiðinni.
Grínið byrjaði fyrir alvöru þegar Helgi kom að júða í rúminu sínu. Helgi, sem þangað til þarna hefur sýnt gyðingum mikla gæsku og skilning, öskraði ókvæðisorð að sofandi júðanum.
"Get off my sheet!"
"This is my sheet!"
Júðinn hugsaði sér ekki til hreyfings og þurfti nú Helgi að gera sér að góðu að sofa í annari koju.

Daginn eftir var borgin skoðuð meira. Frábært veður. Falleg borg.
Úrúgvæ er um það bil tíu sinnum stærri en Ísland. Þrjár miljónir íbúa og ein milljón býr í höfuðborginni. Frekar svipað og heima.
http://www.nice-hotel-notredame.com/images/blogpics/montevideo.gif
Panorama of Montevideo. Taken from the Torre de las Telecomunicaciones. The Palacio Salvo is visible on the far right.
Í skoðunarferð okkar ákváðum við að hvíla frekar lúin bein og settumst á ísbar.
Þar rann að græn glæsibifreið og í henni maður sem ég kallaði Chewbacca. Seli vildi endilega taka mynd af bílnum með stjóranum og spyr hann ósköp sakleysislega hvort að hann mætti taka myndina. Svarið var einfalt: "Allir vilja taka mynd af mér."
Jæja, þá var ekki hægt að gera meira í því. Ypptum öxlum og héldum áfram með mjólkurhristingana okkar. Skömmu seinna spyr síðan maðurinn hvaðan við værum. Við svörum eins og er.
"Ah, Bjork."
Núna er annað hljóð í messum mikla skrokki. Hann vill endilega láta taka mynd af sér og núna með okkur. Við fáum að taka myndirnaraf honum með okkur.
Eftir myndatökuna spyr hann okkur hvort við þekkjum einhverja Silfurlendinga.
Við svörum játandi.
Hann segir þá sjálfan sig vera Casero og að vinir okkar ættu að vita hver hann væri.
Áður en hann heldur inn í stúlkna fans sem vilja fá eiginhandaráritanir tekur hann mynd af okkur með dóttur sinni.

Þetta var sem sagt Alfredo Casero.

Myndband við lag hans. Reyndar er það á japönsku.

Meira um hann hér

Þegar við komum heim ákvað að ég að leggja mig. Meðan eyrað mitt grænkaði voru strákarnir að tala við Tjalla, David. Hann býr í BA og lifir mjög svipuðu lífi og við. Sem sagt vinskapur við fyrsta spjall.
Ég vaknaði fyrir matinn.
Í matnum kynntumst við síðan kananum Merlin sem var að ferðast um heiminn á gamalsaldri.
Mjög viðkunnarlegur maður. Var kominn á eftirlaun eftir að hafa unnið í matvöruverslun allt sitt líf. Hann var búinn að ferðast mikið bæði mikið í Asíu, Afríku og svo eitthvað minna í Suður-Ameríku.
Hann vissi meðal annars af álverskosningunni og þótti mikið til koma. Klár karl.
Kvöldverðurinn rann ljúflega niður enda var hann eins konar þjóðarréttur.
Chivitos.

Eftir matinn var farið á klúbb sem var að opna eftir heilt árs frí.
Þar hittum við mikið af fólki sem vildi óð og uppvæg spjalla aðeins um Ísland og mismun þjóðarinnar. Nenni ekki að skrifa mikið um það.

Diskurinn er bara mjög fínn miðað við fyrstu hlustun. Ég skrifa meira seinna.
Un beso.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært að lesa um ferðalög og frægðarsólir ykkar piltanna og annarra!

Mil besos!

Systir eins piltsins,
Eva Björk

Una sagði...

Ég er svolítið forvitin um Úrúgvæ, væri til í að heyra meira af ferðinni þangað ef þið nennið að skrifa.